Marklýsingar
5. maí 2010: 7-1 sigur á móti Sjöunni
Ásgeir Einarsson lýsir eigin marki:
„Ég vil byrja á að hrósa liðsfélögum mínum. Það spilar hver og einn leikmaður fyrir liðið. Það er stórkostlegt að spila með svona mönnum.
Ég fékk boltann vinstra megin við teiginn, sendi hann til hægri á Orra sem skýtur. Markmaðurinn þeirra ver. Nokkrir varnarmenn standa í kring sallarólegir líkt og antílópuhópur á sléttum Kenýu. En þær vita ekki að rándýrið bíður eftir tækifærinu. Ég geri áhlaup, byrja á að pressa á markmanninn sem sér ekkert skárra í stöðunni en að losa sig við boltann, varnarmaður fær hann á línunni og gerir sig líklegan til að hreinsa en rándýrið er ekki hætt. Ég stekk á boltann með tveggja fóta ýtingu og ýti bolta og manni inn í markið”
Árni Torfason lýsir eigin marki:
„Byrjar á því að Gísli í markinu er fljótur að hugsa og kemur boltanum strax í leik. Orri fær boltann á hægri kanntinum og geysist í átt að endalínu. Hann sendir þéttingsfasta sendingu á Balla. Geri mér ekki grein fyrir hvort að Balli hafi gefið hann áfram á mig, ætlað að skjóta en ekki hitt boltann eða mögulega gaf hann boltann í sinni einstöku óeigingirni. Allavega endaði boltinn fyrir framan fæturnar mínar og þá er ekki að spyrja að leikslokum. Boltinn smurður upp í fjærhornið”
Jón Pétur Guðmundsson lýsir eigin marki:
„Ásgeir var kominn í einhvern Matthew LeTissier þarna á hægri kantinum og var farinn að draga að sér alla vörnina þeirra. Þá sá ég að pláss opnaðist rétt fyrir utan teiginn. Ég sting mér því inn á mðjuna af vinstri kantinum, öskra eitthvað óskiljanlegt á Geira og fæ boltann. Skotið var reyndar semi-ömurlegt, en samt það fast að að hann boltinn kastaðist af búknum á þessum annars hrikalega markmanni og endaði í vinstra horninum. Kannski ekki glæsilegasta mark leiksins, en þó það mark sem gaf tóninn um að þessi leikur væri algjörlega í eigu okkar…”
Baldur Hrafn Gunnarsson lýsir eigin marki:
„Minningin um mitt mark er í hálfgerðri móðu. Mig minnir að Siggi hafi skeiðað upp völlinn en ég hafði áður dregið mig út á hægri kantinn. Siggi sendir boltan á mig.
Tímabilið hafði farið frekar hægt af stað hjá mér í markaskoruninni og fer það illa í alla sanna markahróka. Þarna var hins vegar tækifærið komið. Ég fæ boltann og rek hann í áttina að markinu og hugleiddi að senda boltann á mann í betra færi. Skyndilega varð mér hugsað til gullára David Ginola. Hvað hefði hann gert í þessari stöðu spurði ég sjálfan mig. Ósjálfrátt spenntist vinstri fóturinn í skotstöðu og fyrr en ég viss af söng boltinn í fjærhorninu. Ekki hægt að segja annað en að þungu fargi hafi verið létt því ég hafði skömmu áður misnotað dauðafæri”
Orri Axelsson lýsir eigin marki:
„Jón Pétur er að bera boltann upp miðjuna þannig ég dreg mig út til hægri. Til þess að búa til pláss fyrir JP inná miðjunni.
JP sér mig lausan á hægri kanti og sendir á mig. Þá ætlaði ég að senda hann fast fyrir í fyrsta meðfram jörðinni, milli varnar og markmanns en það var enginn kominn inní. Þannig ég ákvað að taka móti boltanum og hugsanlega taka varnarmanninn á. En þegar ég sæki aðeins á hann þá bakkar hann bara lengra frá mér. Ég færi þá boltann yfir á hægri og bý til skotpláss svo þruma ég á markið svona sirka 16m frá marki, ég hitti boltann alveg 100% með smá utanfótarsnúning og boltinn stefnir á mitt markið en svona sirka 5-7m frá marki þá kemur utanfótarsnúningurinn að góðum notum og sendir boltann í samskeytin nær. Óverjandi”
Sigurður Páll Steindórsson lýsir mörkum sínum tveimur:
„Fyrra markið hjá mér kom eftir hnitmiðaða sendingu frá Brynjari fram völlinn. Komst einn inn fyrir inn í markteig og sett boltann með vinstri í fjær.
Seinna markið kom svo eftir gott samspil milli Balla og Tóta. Fékk sendingu alveg upp við markið og það var ekki hægt að klúðra færinu”
2. maí 2010: 8 – 1 sigur á móti Sjöunni (bikar)
Þórir Már Björgólfsson lýsir fyrsta markinu í leiknum:
„Ég sá að markmaðurinn kom á móti mér með boltann og var ekki alveg vaknaður. Ég næ að pota í hann og greyið, hann byrjar bara að skjálfa, tek eina snertingu og klára þetta og þá var ekkert aftur snúið hann var alveg niðurbrotinn eftir þetta. Ég þurfti að taka þetta á mig fyrir liðið, að brjóta niður makmanninn. Einhver verður að gera þetta“
Myndirðu segja að þetta væri týpiskt mark fyrir þig? „Þetta er kannski ekki það fallegasta en maður á nokkur svona“
Sigurður Páll Steindórsson marki sínu:
„Ég fékk sendingu inn fyrir og ég man eiginlega ekkert hvað ég gerði, ég einhvern veginn pikkaði bara yfir markmanninn“
Orri Axelsson lýsir marki sínu:
„Heyrðu Balli var með hann þarna [segir eitthvað óskiljanlegt], sótti á varnarmanninn. Þá var ég búinn að draga mig út, fékk boltann þóttist leggja hann innanfótar í fjær. Sá að markmaðurinn tók skrefið, þannig að ég setti hann fast í nær. Stönginn inn“
Baldur Hrafn Gunnarsson lýsir marki sínu:
„OK þetta var eitt af mínum klassísku mörkum. Það er yfirleitt þannig að ég byrja sóknir og ég enda sóknir. Þetta byrjaði þannig að ég fæ boltann á okkar vallarhelmingi og það vita það náttúrulega að leikskilningurinn er yfirburðar hjá mér. Ég sé að doktor Geiri, hann má eiga það að hann er einstaklega góður að bera upp boltann þó hann sé ekki góður í að klára færin. Ég sé hann koma á hlaupinu og ákveð að senda á hann frekar en að fara sjálfur og hann leikur honum skemmtilega upp rennur hann fyrir mig og ég semsagt klára hann í nærhornið. Maður hefur séð betri markverði koma á móti sér en þessi stóð bara fastur á línunni þannig að gera en að bara bomba honum á nær og þannig endaði þetta“
Finnbogi Haukur Axelsson lýsir mörkunum sínum fjórum:
„Fyrsta markið var án efa ljótasta markið sem ég hef skorað hingað til með Mannsanum. Ég kom þarna inná með engar lappir og honum með tánni í nær, frekar kjánalegt. Mark númer tvo var góður samleikur milli mín og Dr. Geira sem var með betri mönnunum í dag. Utanfótar slumma í fjærhornið, vel gert. Þriðja markið var annað mjög gott samspil, dr. Geiri, Siggi og ég húkti á línunni og tók hann með hælnum. Fjórða markið var eiginlega skemmtilegasta markið þegar Orri stóð eins og aumingi á fjærstönginni og var alveg brjálaður við stóra bróðir sinn fyrir að hafa tekið skotið, en hann fór í fjærhornið og öruggur sigur staðreynd. Þetta var góð liðsframmistaða og ég held að við tökum þetta lið aftur á miðvikudaginn“
27. apríl 2010: 1-0 sigur á móti Gulldrengjum (bikar)
Árni Torfason lýsir eigin marki:
„Það var nístíngskuldi miðað við hlýjuna í Fífunni og geirvörturnar stinnar í samræmi við það. Ég var nokkurn veginn búinn að gera ráð fyrir að ef við myndum skora mark þá yrði það frákastmark þar sem að eins og marg oft hefur verið sagt þá lentu öll skotin í stöng eða voru beint á markmann. Þannig að eins og sannur skáti sem ég er ekki þá var maður tilbúinn að hamra kvikindið í markið ef frákast næðist. Gott spil hjá Benna og Orra, skot í stöng, boltinn hrekkur út. Ábyggilega 5 leikmenn fyrir framan mig og þar á meðal þessi 220cm maður. Ákvað að leggja hann hnitmiðað í hornið í staðin fyrir að skjóta 20 metra yfir eins og Ásgeir gerði í fyrrihálfleik, Bimba til mikillrar gremju. Svona var mín upplifun á markinu”