Archive for the Tölfræði Category

Sumarið, lokahófið og Fífuboltinn

Posted in Samantekt á tímabili, Tölfræði on ágúst 24, 2010 by Ásgeir

Ég er búinn að leggjast aðeins í gömul úrslit. Ég er búinn að taka saman heildar- sigurhlutfall okkar frá því að við byrjuðum í Carlsberg deildinni.

2007: 68%

2008: 46%

2009: 35%

2010: 54%

Ég er búinn að setja hlekki á úrslitin hér til hliðar. Það sem vekur mesta athygli er að við unnum fjóra af fimm fyrstu leikjum okkar árið 2008 en þá hófst lægð í sögu Mannsa. Við unnum ekki leik það sem eftir lifði sumars og sumarið 2009 var sögulega lélegt. Núna í sumar náðum við hins vegar að vinna okkur upp úr lægðinni. Við duttum þó í ör-lægð um mitt sumar en við náðum að vinna okkur upp úr henni með taktískum breytingum.  Að mínu mati hafa allir leikmenn staðið sig vel og þá sérstaklega nýju leikmennirnir okkar sem hafa allir staðið undir væntingum og vel það. Auðvitað hafa sumir leikmenn átt betra mót en aðrir og það verður allt  gert upp á lokahófinu.

Ég þakka kærlega fyrir gott og skemmtilegt sumar.

Ég er búinn að bóka Fífuna á sama tíma og venjulega (þriðjudagar klukkan 21) og þið þurfið að láta mig vita sem fyrst hvort þið verðið með eða ekki.

Varðandi lokahófið þá er ég upptekinn næstu tvær helgar en önnur helgin í september lítur helvíti vel út. Hvað segið þið með það? Bimbi stakk upp á golfmóti sem verður svo slúttað á góðu fjelleríi.

TÖLFRÆÐI

Posted in Markaskorarar, Tölfræði on ágúst 10, 2010 by Ásgeir

Ég hef ákveðið að breyta þessu í tölfræðigrein. Ég bíð spenntur eftir leikgreiningunni frá Balla.

Það eru 4 leikir eftir og ég mun koma með nýjan tölfræðikafla eftir úrslitakeppnina.

MARKASKORARAR (deild+bikar=samtals):

Bimbi: 4+7=11

Orri: 6+1=7

Siggi: 6+1=7

Balli: 4+1=5

Dr. Geiri: 4+0=4

Árni: 1+1=2

Jón Pétur: 2+0=2

Ásgeir: 1+0=1

Brynjar: 1+0=1

Kjartan: 1+0=1

Tóti: 0+1=1

Samtals 42 mörk í 12 leikjum sem gerir 3,5 að meðaltali í leik.

30 mörk í deildinni, 3,33 mörk að meðaltali í leik

12 mörk í bikarnum, 4 mörk að meðaltali í leik

MARKMENN (deild+bikar=samtals):

Gísli Örn Kjartansson: Leikir:7+2=9, Mörk fengin á sig 12+1=13, Hann fékk  að meðaltali á sig 1,7 í deild 0,5 í bikar og 1,44 mörk í leik samtals. Hann hélt hreinu í 3 leikjum.

Ásgeir Einarsson: Leikir: 2+1=3, Mörk fengin á sig 8+4=12, Hann fékk að meðaltali á sig 4 mörk í leik sem allir töpuðust. Hann hélt aldrei hreinu.

SIGURHLUTFALL (hlutfall leikja sem vinnast þegar leikmaður mætir):

Ég ákvað að draga neðri mörkin við 4 spilaða leiki

Gísli: 78%

Addi: 75%

Torfi: 75%

Ármann: 71%

Orri: 67%

Siggi: 64%

Dr. Ásgeir: 63%

Ásgeir: 58% – hefur mætt í alla leiki (sigurhlutfall liðsins)

Balli: 55%

Árni: 50%

Brynjar: 50%

Benni:50%

Bimbi: 50%

JP: 50%

Með færri en 4 leiki spilaða

Elli: 100%

Eddi: 100%

Gussi: 100%

Tóti: 100%

Arnar: 50%

Kjarri: 0%


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.