Hér má sjá brot úr Mannsa-leik eins og meistari Ármann sér hann:
Hér eru svo normal myndböndin:
Byrjum á myndunum (smellið á hlekkinn til að sjá þær)
Árni náði mynd af dæmigerðum Kjartani:
Hér eru myndböndin. Ég nennti ekki að klippa þetta til. Ég setti tímasetningar á hápunktunum í komment fyrir neðan hvert myndband.
Brot af því besta:
Hér má sjá lengri brot úr fyrri hálfleik og seinni hálfleik
Þriðjudagsæfingin er á sama tíma og venjulega en leikurinn við Haarde á miðvikudaginn hefst kl 21, upphitun 20:30. Haarde virðist vera með nokkuð gott lið en þeir gerðu jafntefli við Bombulosara (1-1), liðið sem að við töpum fyrir í fyrsta leik.
Hverjir mæta á æfingu og hverjir mæta í leik?
Eins og flestir vita þá fór leikurinn í bikar við KF mjöðm 13-0 fyrir Mannsa. Dr. Geiri var útnefndur maður leiksins vegna góðrar frammistöðu í sókn og vörn. Allir spiluðu vel en vert er að minnast á Ásgeir Einarsson sem hefur verið endurheimtur eftir hálfgert “Torres” season eftir áramót. Annað sem hefur komið mér skemmtilega á óvart er spilamenska Gests. Yfirferð, stöðugleiki og grimmd einkennir leik hans og er hann gríðarlegur akkur fyrir Mannsa.
Ég ætla ekki að hafa pistilinn lengri vegna hættu á yfirdrifinni jákvæðni.
Jæja næsti leikur á sunnudag 1. maí klukkan 18:00. Hverjir mæta?
Ef mig brestur ekki minni þá sigraði Íslandspóstur okkur 3-1 leiktíðina 2009. Núna snérist taflið við og vörn Mannsa setti í lás. Pínlegt að sjá hversu seint Mannsavélin fer í gang en ennþá er hægt að halda í vonina um að komast í úrslitakeppnina. Ég er hinsvegar ekki jafn bjartsýnn og Geiri (orginal) að FC sjöan sé að fara að tapa stigum í síðustu leikjum sínum. Greinilegt er að stígandinn hefur verið mikill á þeim bænum og eru þeir allt eins líklegir að taka Wink og Black Börburu sem eru gott sem búnir að tryggja sig áfram.
Nokkuð útséð er með að Orri hirði titilinn MVP sumarsins 2010. Það eina sem gæti komið í veg fyrir það væri allgjör flugeldasýning Sigga Palla í síðasta leiknum. Orri sýndi kunnulega takta þegar hann komst af harðfylgi í gegn um vörn póstsins og renndi boltanum snyrtilega í netið. 1-0 fyrir Mannsa.
Fyrir leikinn var tvísýnt hvort gamla kempan hann Balli stæðist læknisskoðun eftir að hafa misstigið sig frekar klaufalega í síðasta leik. Yfirmaður læknasviðs Mannsa, Ármann Jónsson, sá sjálfur um að yfirfara meiðslin. Eftir tiltölulega stutta skoðun og tilboð um að preskríbera bólgueyðandi stíla var gefið grænt ljós. Ofurtrú læknisins á stílum er efni í annan pistil.
Á 15 mín leiksins var einu myndavél póstmanna beint að varamannbekk Mannsa en þar var Balli að gera sig klárann í innáskiptingu. Leikurinn var á þessu stigi í járnum, annaðhvort bættu Mannsi við eða Pósturinn kæmust betur inn í leikinn, allt gat gerst! Svona aðstæður eru stundum jarðvegur fyrir ótrúlegt einstaklingsframtak og hver annar en halti “fituhlunkurinn” Balli töfraði fram snilld sem minnti á seinna mark Diego Armando Maradona í undanúrslitunum Argentínu og Englands á HM ’86. Balli vann boltann á eigin vallarhelmingi og þaut beint í áttina að marki póstsins og þrumaði knettinum upp við stöngina í fjær. 2-0 fyrir Mannsa.
Eftir þetta þurfti Pósturinn að færa sig ofar á völlinn í von um að minnka muninn. Við það sköpuðust tækifæri til að sækja hratt og get ég með nokkuð góðri samvisku sagt að okkar helstu markahrókar hafi misnotað nokkur dauðafæri. Eftirminnilegast er þegar Bimbi af öllum mönnum skaut framhjá einn á móti markverði. Hann bætti fyrir það seinna í leiknum með svakalegum spretti til baka og gerði þar með skyndisókn andstæðinganna að engu (þeir sem urðu vitni að þessu brosa væntanlega af tilhugsuninni af manninum liggjandi á bakinu bak við markið eftir að hafa sprungið við átökin).
Síðasta mark Mannsa átti Dr. Geiri eftir skot/sendingu Sigga. Réttur maður á réttum stað og bætist þetta við úrvalið af mörkunum sem hann hefur skorað í sumar. Líklegt þykir að hann verði kosinn besti ungi leikmaðurinn eftir tímabilið. 3-0 fyrir Mannsa.
Pósturinn náði síðan að minnka muninn í 3-1 en þökk sé gríðalega sterkri vörn leidda af Binna Harðar, Benna Gull, Edda, Adda og comeback Ella þá urðu þau ekki fleiri. Gísli stóð sig eins á ávallt vel í markinu, jafnvel betur en yfirleitt vegna samkeppni úr óvæntusu átt.
Ármann átti stórfína spretti, Geiri skilaði hlutverki sínu vel á miðjunni þrátt fyrir að spila úr stöðu. JP kom sér í góð færi og Árna er tamt að styðja vel við félagana. Voanandi að þessir menn raði inn mörkum í síðasta leiknum við Flesta Rauða.
Finnur gefur 7.5 fyrir frammistöðu liðsins í þessum leik. Mínusstig fyrir að skora ekki fleiri og fá á sig fáránlegt mark undir lokin.
Mannsinn sigraði Premier 2-1 með klassa varnarleik.
Tveir koma til greina sem maður leiksins. Orri skoraði eitt og lagði upp annað en endaði upp á slysó eftir leik vegna ofþornunnar.
Hinn er að sjálfsögðu Balli. Hann byrjaði leikinn frekar kraftlaust, kom sér í eitt dauðafæri en náði að klúðra því. Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn tókst honum að snúa á sér ökklann og enginn möguleiki á innáskiptingu vegna varamannaleysis. Í gegnum sársaukann náði hann samt að setja eitt þegar hann fórnaði sér í tæklingu við markvörð fc premier. Þetta reyndist síðasta hálmstrá ökklans og ekkert annað í stöðunni en að Balli setti upp markmannshanskana og Gísla skipt í striker. Menn supu hveljur þegar sennilega sá lélegast markvörður Fífuboltans skipti um treyju við Gísla og áttu von á því versta.
Öllum að óvörum var eins og maðurinn væri andsettur af löngu liðnum markmannssnillingum og átti hverja gæðavörsluna á fætur annarri. Siggi átti ekki til eitt aukatekið orð þegar Balli tók síðasta skot leiksins, sveif upp í skeytin og blakaði boltanum í horn. “Epísk markvarsla” eins og Siggi orðaði það.
This team, this spirit, we play together, fight together and I rrrreally rrrreally happy because I found the team from last summer. This team, we now go forward and play against all the other teams, because the mind, now, is free, without fear, without EVERYTHING! … einkar viðeigandi orð í okkar tilfelli í boði Fabio Capello.
Eins pínlegt og það er að segja það, þá hafði Geiri rétt fyrir sér þegar hann ákvað að Mannsi myndi spila 3-2-1. Þetta var reynt hérna um árið en síðan var aftur skipt yfir í hefðbundnari 2-3-1. Skyndilega óð Mannsi í skyndisóknum þar sem Dr. Geiri, með öllum sínum krösídúllum naut sín vel.
Ég vil minnast sérstaklega á Adda B sem kom virkilega sterkur inn á kantana og í vörn. Loksins skil ég af hverju hann pantaði skyndilega árskort í ljósum og lét setja strípur í hárið hérna um árið. Inni í manninum kraumar S-amerískur samba-súkkúlaðifótboltastrákur sem svo sannarlega vaknaði til lífsins í leiknum við FC Sveinþór. Virkilega gaman að sjá þegar potential pays off. Það var búið að fjárfesta í Adda sem loksins bar ávöxt.
Gísli stóð sig með ágætum í markinu og varði nokkur sem næst óverjandi skot.
Geiri hélt áfram að tuða í Balla yfir því að hann skipti sjálfum sér ekki útaf þegar hann var settur í sóknina. Ekki halda að ég hafi ekki heyrt vælið í þér þarna úti á kantinum.
Ármann hélt uppi nafni Frakklands á þessum síðustu og erfiðu. Loksins þegar hann hefur hætt þessum Iron-man lífsstíl hefur hann krafta aflögu til að taka eins og nokkra spretti upp kantana. Flott Ármann!
Binni og Benni voru solid í vörninni. Binni á hrós skilið fyrir að hafa bundið þetta saman og öskrað á menn þegar þeir áttu það skilið.
JP er alltaf hættulegur en maður er samt að bíða eftir stóra leiknum.
Torfi naut sín virkilega vel í vörninni enda eru þetta síðustu dagar hans sem frjáls maður. Hann er að fara að gifta sig eftir mánaðarmót. Mér fannst grilla í gamla Torfa sem sólaði upp vellina, hlæjandi af andstæðingunum sem sátu eftir á rassgatinu.
Siggi Palli átti stórleik, með tvö mörk sem hefðu getið orðið fleiri. Fær mínusstig fyrir að gefa ekki á Balla þegar hann var í dauðafæri.
BTW leikurinn fór 3-0 fyrir Mannsa
Sjaldan hefur risið á Mannsa verið jafn lágt í gærkveldi. Gulldrengirnir nýttu færin vel en Mannsinn datt í kunnulegar stellingar þ.e. Barcelona-boltann. Ég held að það sé mönnum dagljóst hvað hefði geta verið gert betur og hvað var gott. Mannsinn hefur alltaf verið árangurs-óríentareður og kom tapið þess vegna eins og blaut tuska í andlitið.
Ljósu punktarnir voru Kjartanelli, Dr. Geiri og Orri.
Nú þurfum við að stilla strengina fyrir næsta leik, rífa þetta í gang, hætta vælinu og sýna gæðin.