Mæting?
Fífubolti 4. okt
Posted in æfing on september 28, 2011 by ÁsgeirFífuboltinn mun byrja á ný þriðjudaginn 4. október klukkan 21:00.
Það eru nokkur laus pláss fyrir áhugasama. Látið vita hvort þið ætlið að vera með og reynið endilega að finna verðuga kandídata til að fylla lausu plássin.
Lokahóf Mannsa
Posted in Samantekt á tímabili on september 3, 2011 by BaldurÖllu var tjaldað til í lokahófi Mannsa sem haldið var á Eggertsgötu 24 síðastliðið föstudagskvöld. Kvöldið var í alla staði vel heppnað en hápunktinum var sennilega náð þegar kosið var um MVP sumarsins, Jaxlinn og Herra Mannsa. Telja þurfti tvisvar úr kjörkössunum því í ljós kom að formaður kjörnefndar, Baldur Hrafn Gunnarsson, bætti auka atkvæði á sjálfan sig í kosningunni um Herra Mannsa. Oftast var mjótt á munum og var það yfirleitt eitt atkvæði sem að skildi menn frá fyrsta og öðru sæti. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Orri Axelsson var kosinn MVP sumarsins með 3 atkvæði.
Brynjar Harðarson hlaut nafnbótina Jaxl sumarsins með 2 atkvæði. Gestur ásamt fleirum fylgdu fast á hæla Brynjars með 1 atkvæði.
Eftir augljóst kosningasvindl þurfti að endurtelja um eftirsóttasta titil fótboltaklúbbsins, Herra Mannsi. Hin annálaði snyrtipinni Dr. Geiri og kvennatryllirinn JP enduðu saman með 2 atkvæði. Skorið var úr um hver fengi titilinn og sexy tie í kaupbæti með handauppréttingum. Niðurstaðan varð að JP sigraði með miklum yfirburðum með fullt hús stiga. Sennilega hefur fjarvera Dr. Geira samt haft eitthvað um það að segja.
Að lokum fylgir mynd af markakóngi sumarsins með farandbikarinn “Gullskóinn”.
Mannsi – Gulldrengirnir mánudaginn 22. ágúst kl 20
Posted in Leikur on ágúst 18, 2011 by BaldurHverjir mæta?
Mannsi 6 – 3 Hómer
Posted in Leikur, Uncategorized on júlí 26, 2011 by BaldurÁnægjuleg úrslit eftir heldur brösulegt sumar. Engan veikan hlekk að finna á liðinu í dag.
Mannsi – Hómer Mánudaginn 25. Júlí kl 21
Posted in Uncategorized on júlí 22, 2011 by BaldurMenn (ákveðnir menn) hafa verið að einbeita sér um of á vídeóklippur og hvernig þeir koma út fyrir framan myndavélina. Nú verður spilaður fótbolti.
Hverjir mæta?
